Gráa svæðið

25.11.08

Bréf til menntamálaráðherra

Mig langar til að þakka þér fyrir góð svör og hrokalausa framkomu á borgafundinum í Háskólabíói fyrr í kvöld. Mér finnst að ýmsir aðrir ráðherrar í ríkisstjórn gætu lært af þér. Styrkur þinn felst í því að viðurkenna eigin breiskleika. Þú tókst m.a. mjög vel á spurningunni um fjármálaráðgjafann og endurmenntunina. Forsætisráðherra gerði það hins vegar ekki. Svör hans voru dæmigerð fyrir þá afdrifaríku og óþörfu afleiki sem leiknir hafa verið í almannatengslum forsætisráðuneytis á liðnum vikum. Ég tel að þá gjá sem hefur skapast milli ríkisstjórnar, þingheims og þjóðar megi að nokkru leyti brúa ef ríkisstjórn og þingmenn færu að dæmi þínu, viðurkenndu að gerð hefði verið röð mistaka, meðal annars innan ríkisstjórnarinnar, bæðust afsökunar og bæðu almenning um svigrúm, þolinmæði og traust til að bæta fyrir það sem aflaga hefði farið. Mikilvægast er að breyta tóninum í umræðunni. Ég tel að það væri sterkur
leikur hjá ykkur að endurnýja ráðherrahópinn að hluta, eða a.m.k. að gera einhverjar skipulagsbreytingar. Eðlilegast væri að nýir aðilar tækju við fjármálaráðuneyti og viðskiptaráðuneyti. Ný trúverðug forysta í Seðlabankanum og Fjármálaráðuneytinu er svo sjálfsögð að ég ætla ekki að ræða það frekar, enda tel ég að þú ert sammála mér þar. Ég tel að kosningar séu óráð á næstu mánuðum en það er algjörlega lífsnauðsynlegt fyrir ykkur og okkur að endurreisa trúnað milli ríkisstjórnar, þings og þjóðar.

<$I18N$LinksToThisPost>:

Create a Link

<< Heim