Gráa svæðið

31.12.08

Broskarlinn og friðartáknið


Valgerður Birna fékk það verkefni í byrjun desember að teikna mynd framan á afmæliskort Hans Hektors, fjórtán ára frænda síns. Hún settist við stofuborðið, jólatónlist hljómaði úr geislaspilaranum, það voru smákökur á boðstólum. Eftir drjúga stund sagðist hún vera búin. Afraksturinn sjáið þið hér fyrir ofan.

Þetta er mynd af húsi Seðlabanka Íslands, á dyramottunni stendur orðið KREPPA stórum stöfum, hægra megin við húsið er ónefndur mótmælandi, við fætur hans er eggjabakki, maðurinn er þegar búinn að kasta nokkrum eggjum í framhlið bankans og hrópar nú hátt: KREPPA. Skammt frá er tjörn, þar má sjá lítið leikfangaskip á floti en við hlið þess flýtur íslenska krónan. Ljóst er að seðlabankastjórar eru búnir að setja hana aftur á flot, fiskurinn framan á myntinni bendir til að hún geti steypt sér í djúpið. Vinstra megin við húsið stendur afmælisbarnið. Svar hans við kreppunni eru broskarl, friðartákn og upphrópunarmerki, en rétt er að geta þess að það síðastnefnda er einkenni Nóvemberáskorunarinnar (http://www.novemberaskorunin.com/).

Okkur foreldrunum brá þegar við fengum þetta kort í hendurnar. Tal okkar fullorðna fólksins um kreppuna, auk umfjöllunar í dagblöðunum, útvarpinu og sjónvarpinu, höfðu haft þvílík áhrif á barnið að þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar því var falið að gleðja frænda sinn á afmælisdaginn. Frá og með þessum degi höfum við alltaf tekið tillit til óska Valgerðar Birnu þegar hún biður okkur um að slökkva á útvarpinu þar sem við situm við matarborðið eða erum á ferð í bílnum. Hún er augljóslega komin með ofnæmi fyrir neikvæðu fréttum og skynjar væntanlega líka hver áhrif þau hafa á okkur hin.

En um leið furðum við okkur á því hve skilningur hennar á andrúmsloftinu í samfélaginu og inni á heimilinu er næmur. Val hennar á myndefni starfar ekki af því að hún hafi tekið þátt í mótmælum á Austurvelli eða Arnarhóli. Hún hefur hins vegar fylgst með þátttöku pabba síns, föðurbróður (pabba Hans Hektors) og afa í Nóvemberhópnum, spurt hvað upphrópunarmerkið á afturglugga bílsins okkar eigi að merkja og vissi að við höfðum verið að dreifa barmmerkjum og öðru efni í miðbænum nokkra laugardaga í röð í nóvember. Tvær helgar tók Hans Hektor þátt í barmmerkjagerðinni með okkur en þegar til átti að taka langaði hann ekki að koma með okkur á mótmælafundina.

Nóvemeráskorunin var viðbragð við magnleysi íslenskra stjórnvalda andspænis því efnahagslega og hugmyndafræðilega hruni sem fylgdi í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að yfirtaka Glitni. Í henni er lögð áhersla á þrjá meginþætti sem snerta fortíð, samtíð og framtíð þjóðarinnar. Farið er fram á að gerð verði raunveruleg úttekt undir forystu erlendra aðila á ástæðum þessa hruns, að mótuð verði skýr efnahagsstefna og skipt um yfirstjórn í Seðlabankanum og lokst að hafnar verði aðildaviðræður við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku evrunnar.

Nóvemberáskorunin var ekki frumlegt plagg. Þar voru einfaldlega orðaðar á einum stað kröfur sem fjölmargir höfðu verið að setja fram eða taka undir í októbermánuði, þar á meðal forystumenn launþega og atvinnurekenda, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Samfylkingarinnar. Enn fleiri hafa tekið undir þessar kröfur síðan. Staðreyndin er því miður sú að stjórnvöld hafa enn ekki tekið afdráttarlaust af skarið gagnvart neinum þeirra þriggja þátta sem þarna eru til umræðu. Framkoma þeirra undanfarna mánuði hefur framkallað sífellt háværari kröfur um endurnýjun í ríkisstjórn, á Alþingi og í íslensku stjórnkerfi.

Í ljósi þess alvarlega trúnarbrests sem orðið hefur milli almennings og stjórnvalda er vel hugsanlegt að Nóvemberáskorunin sé orðin úrelt; að úr því sem komið er sé nauðsynlegast af öllu að þau viðfangsefni sem þar er rætt um komi til kasta nýrra stjórnvalda sem hafi umboð frá þjóðinni. Ætla má að mánaðarmótin janúar-febrúar verði örlagastund á hinum pólitíska vettvangi. Við sjáum hvað setur, hvaða merkingu upphrópunarmerkið fær á næstu misserum.

Eftir standa hin táknin tvö sem Valgerður Birna lætur glaðlyndan frænda sinn miðla til okkar á afmæliskortinu. Þetta eru tákn jákvæðni og friðar, tákn þeirra lífsgilda sem næsta kynslóð biður okkur um að halda í heiðri næstu misserin. Gleðilegt nýtt ár.

<$I18N$LinksToThisPost>:

Create a Link

<< Heim