Í öruggum höndum
"Örlög Íslands öruggust í höndum Íslendinga". Þessi orð úr Morgunblaðinu á laugardaginn hafa leitað á huga minn alla vikuna. Þau voru fyrirsögn aðsendrar greinar um kosti og ókosti þess að Íslendingar gengju í Evrópusambandið. Greinina skrifaði einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þess stjórnmálaafls sem hefur haft örlög okkar í hendi sér undanfarna tvo áratugi. Það, eitt og sér, hefði verið nóg til að ljá niðurstöðu hans kaldhæðnislegan blæ en við bættist að höfundur greinarinnar er Árni Johnsen. Kostulegast er að hann gerir sér hvorki grein fyrir hvílíka klisju um er að ræða né hvernig hann hefur sjálfur, með einkar augljósum hætti, tekið þátt í að ræna hana trúverðugleika.

<$I18N$LinksToThisPost>:
Create a Link
<< Heim