Gráa svæðið

14.3.09

Karíus og Baktus Holding

Bærinn er skrítinn, hann er fullur af holum,
holur á milli gatnanna liggja
og við blessað hafið, þar stóð eitt sinn bryggja,
er byggðin öll í handaskolum.

Enginn veit lengur hví mennirnir hafa
holurnar grafið í rótgrónum hverfum.
Þeir eru horfnir, við holurnar erfum
og höldum svo áfram að grafa.

Í pressunni lýst er furðu og frati
á frumkvöðlum þeim sem holurnar grófu;
við hröktumst af leið í halarófu,
hámenntuð þjóð, og stöndum á gati.

<$I18N$LinksToThisPost>:

Create a Link

<< Heim