Gráa svæðið

6.9.09

Mótmælandi Íslands

Ég sé hann svo til daglega, mótmælanda Íslands, hvort sem ég á leið hjá í morgunsárið eða síðla dags, hvort sem úti er sól og blíða, rigning og rok, snjókoma og fjúk. Hann starfrækir minnsta fjölmiðil á Íslandi og það er ekki hægt að segja að boðskapurinn breytist ört: frá því snemma á þessu ári hefur hann staðið þarna með sama skiltið með sömu knöppu skilaboðunum:

BLÓÐ
BUSI
DÓRI
DAVI

Í liðinni viku sá ég forsýningu á frábærri heimildamynd um þennan óvenjulega, aldraða mann - Helga Hóseasson - mynd sem gerði mig í senn glaðan og hryggan, en þó umfram allt hugsi.
Í myndinni segir Helgi frá því að lögreglumenn hafi hvað eftir annað tekið af honum mótmælaspjöld, meðal annars þegar hann hefur staðið fyrir utan íslenskar kirkjur og tjáð álit sitt á ríkistrú þjóðarinnar. Ljóst er að hann leggur mikla vinnu í hönnun þessara spjalda og að þau eru gerð af naumum efnum. Framganga lögreglunnar hefur væntanlega orðið til þess að Helgi heldur sig núorðið alltaf á sama götuhorninu, á horni Langholtsvegar og Holtavegar, þar sem hann vonast til að vera látinn í friði af laganna vörðum.

Mótmælastaða hans á þessum einkennilega stað rifjar upp viðbrögð yfirvalda við ýmsum öðrum mótmælendum, t.a.m. þeim sem birtst hafa með spjöld sín á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn 17. júní og eins þeim sem vildu mótmæla komu forseta Kína hingað til lands fyrir rúmu ári. Svo virðist sem íslensk yfirvöld séu því aðeins hlynnt mótmælendum að þeir láti lítið á sér bera. Ef til vill er hér á ferðinni sérstæður skilningur yfirvalda á athöfnum frægustu mótmælenda Íslands sem sögðu á Þjóðfundinum 1851 "Vér mótmælum allir" og gengu síðan af fundi. Með því að fjarlægja íslenska mótmælendur af vettvangi viðburða vill lögreglan kannski aðstoða þá við að feta í fótspor sjálfs Jóns Sigurðssonar.

Með öðrum orðum: Það skiptir ekki öllu máli hvaða skoðanir Helgi Hóseasson viðrar á mótmælaspjöldum sínum núorðið. Veigamestu skilaboðin sem felast í mótmælastöðu hans eru skráð í stjórnarskránni: "Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji... Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar... Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða... Rétt eiga menn á að safnast saman vopnlausir." Staða hans á horni Langholtsvegs og Holtavegs bendir jafnframt til þess að þessi ákvæði hafi ekki verið virt sem skyldi.

En það stendur allt til bóta. Síðar á þessari öld verður beinlínis gert ráð fyrir fólki með mótmælaspjöld á Austurvelli að morgni 17. júní, t.d. við hlið lúðrasveitarinnar. Og þá leggur forsætisráðherra ekki bara blómsveig við tómhenta styttu Jóns forseta, mótmælanda Íslands # 1, heldur líka við aðra styttu, af mótmælanda Íslands # 2. Sú stytta verður með mótmælaskilti í annarri hendi og fötu í hinni.

(Birtist upphaflega í Lesbók Morgunblaðsins 11. október 2003)

<$I18N$LinksToThisPost>:

Create a Link

<< Heim