Á sumardaginn fyrsta 2010
Degi hallar, mig dauðlangar
að druslast í sólskinið út ,
fullir kallar, óþekktarangar
þar eru að drekka af stút.
Uppi á stórum stalli Jón
stendur og glápir á þing,
blautan dreymir draum um Fjón
Damaskus og Peking.
Á Tjarnarbakka Bertel og Nasi
bréfdúfudriti safna,
herrar yfir grænu grasi
og grátlegu krunki hrafna.
Mig dauðlangar þá degi hallar
að drekka hvítvín með humri,
þó að fimmtán formgallar
finnist á þessu sumri.
að druslast í sólskinið út ,
fullir kallar, óþekktarangar
þar eru að drekka af stút.
Uppi á stórum stalli Jón
stendur og glápir á þing,
blautan dreymir draum um Fjón
Damaskus og Peking.
Á Tjarnarbakka Bertel og Nasi
bréfdúfudriti safna,
herrar yfir grænu grasi
og grátlegu krunki hrafna.
Mig dauðlangar þá degi hallar
að drekka hvítvín með humri,
þó að fimmtán formgallar
finnist á þessu sumri.

<$I18N$LinksToThisPost>:
Create a Link
<< Heim