Gráa svæðið

29.10.10

Sjá roðann í fjáraustri

100 menningarnir sem skora á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að draga til baka umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu fullyrða að umsóknin snúist ekki lengur um að kanna hvað í boði er heldur sé "nú að hefjast flókið ferli aðlögunar að regluverki og stofnanakerfi ESB með milljarða fjáraustri frá Brussel. Slíkar greiðslur frá Evrópusambandinu gera að engu þær vonir að hér fari fram lýðræðisleg og hlutlæg umræða um kosti og galla aðildar." Seinna í ályktuninni segir að skoðanakannanir seinasta árið hafi "sýnt andstöðu yfirgnæfandi meirihluta kjósenda við aðild Íslands að ESB. Áframhaldandi aðlögunarferli er því gróf ögrun við lýðræði í landinu."

Hér er um mjög alvarlegan misskilning að ræða. Aðlögunarferli Íslands að regluverki og stofnanakerfi ESB hófst árið 1994 með aðild okkar að EES samningunum og er talið að því sé 70% lokið. Aðlögunin heldur samt áfram dag frá degi með upptöku nýrra lagabálka ESB án þess að við Íslendingar höfum nokkuð um þá að segja. Þetta er vissulega gróf ögrun við lýðræði í landinu.

Á síðustu sextán árum hafa milljaraðarnir streymt hingað frá Brussel. Íslensk sveitarfélög, félagasamtök, bændur, nýsköpunarfyrirtæki, opinberar stofnanir og óteljandi vísindamenn og listamenn hafa verið að taka við peningum frá ESB án þess að roðna eða blána. 7. rannsóknaáætlun ESB, Almannavarnaáætlun, Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum, Evrópa unga fólksins, eTwinning - rafrænt skólasamstarf, Progress - jafnréttis- og vinnumálaáætlun, MEDIA Kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun ESB, Menningaráætlun ESB og Menntaáætlun ESB eru dæmi um þau nöfn sem ESB gefur lítt dulbúnum mútugreiðslum sínum.

Þá má ekki má gleyma öllum þeim þúsundum af ungmennum sem hafa verið að fara til lengri eða skemmri dvalar í Evrópusambandslöndum í gegnum ERASMUS námsmannaskiptin. Boðsferðirnar sem ungir Alþýðubandalagsmenn fóru í forðum tíð til Austur-Evrópu og Sovétríkjanna eru barnaleikur í samanburði. Sú staðreynd að meirihluti þjóðarinnar vill fá að sjá aðildarsamning sýnir hve ESB hefur orðið vel ágengt í lymskufullu áróðursstarfi sínu. Þjóðin er engan vegin fær um það lengur að ræða þetta mál á hlutlægan hátt, hvað þá að greiða um það atkvæði. Lýðræðinu er best borgið með því að koma í veg fyrir að lýðurinn fái að ráða.

<$I18N$LinksToThisPost>:

Create a Link

<< Heim